
Última atualização: 01 de
Outubro de 2007
Dúvidas, sugestões e críticas? Envie um e-mail
para
política de privacidade | privacy
policy
webmaster@rotex.com.br
Velkomin!
Hvað er Rótex?
Rótex er hópur fyrrverandi
Rótarýskiptinema sem fóru sem skiptinemar í heilt ár eða tóku þátt í einhverjum
öðrum af þeimfjölmörgu unglinga prógrömmum sem Rótarý hefur uppá að bjóða.
Hinsvegar er þetta ekki eiginlegt Rótarýstarf þar sem Rótexhópurinn vinnur að
því að aðstoða þá sem eru þegar í skiptinemaprógramminu sjálfu.
Rótex í São Paulo
Stofnað í desember 2001, Rótex São
Paulo er hópur fyrrverandi Rótarý skiptinema sem lifa og starfa í São Paulo og í
héruðunum í kring, í Brasilíu eru umdæmin 4430, 4590 og 4610. Hlutskipti þeirra
er að vinna að því að hámarka og bæta skiptinemaprógrammið hjá Rótarý gegnum
samvinnu með skiptinemum núverandi og fyrrverandi.
Framkvæma
Í raun starfar Rótex mikið samhliða
Rótarý.
Við vinnum verkefni með öllum umdæmum Rótarý EXPro Brasil, eins og
kynningar fyrir skiptinema á leið út í heim og þá sem eru nýkomnir til Brasilíu
að utan, skiptinemafjölskyldur og trúnaðarmenn skiptinemanna, val á skiptinemum,
portúgölskupróf og skipulag á kynningu þeirra landa sem í boði eru á "Feira das
Nações", sem er einnig stærsta kynning á skiptinemaprógramminu í São Paulo.
Samhliða þessu skipuleggur Rótex samkomur í hverjum mánuði fyrir erlenda
skiptinema sem eru á landinu í það og það skiptið. Þessar skemmtanir eru t.d.
skoðunarferð um miðbæ São Paulo, garðar heimsóttir, hjólaferðir, ferðir á söfn,
fótbolti, Brasilískar grillveislur (nammi namm) og miklu meira.
Hver erum við
Forseti: Pedro Prochno
Ritari:
Camila Chabar
Gjaldkeri: Wanessa Padilha
Formaður erlendra
skiptinema: Juliana Almeida
Formaður Brasilísku skiptinemanna: Maurício
Segoshi
Núna telur þessi hópur 14 manns og 3 lærlingar.
Hafa samband:
Til að hafa samband við okkur, skrifið
til rotex@rotex.com.br.
Eftir að hafa skrifað vinsamlegast merkið (á subject línuna) hvaða tungumál þið
skrifuðuð bréfið á. Þá getum við komið bréfinu á réttan aðila sem getur þýtt
bréfið.
Takk fyrir að koma á síðuna okkar! Vonum að þér hafi líkað við hana og vinsamlegast sendu okkur línu á umræðuþræðinum okkar!
Þýdda útgáfan af Rotex vefsíðunni hefur það að markmiði að ná til sem flestra. Og þar með ná takmarki Unesco að lágmarka eða eyða illskiljanlegum samskiptum sem mismunandi tungumál hafa í för með sér. Til að viðhalda þjóðlegum einkennum í þeirri alheimsvæðingu sem internetið er.
Þessi síða var þýdd af: Ragnar Unnarsson e Karen Talita Tanaka